Fallegt landslag

Í Tálknafirði er fallegt landslag hvert sem litið er og á hvaða árstíma sem er. Þegar fjöllin speglast í sléttum sjónum í logninu og sólin glampar á hvítan fjörusand þá er sama hvaða árstíð er, náttúrufegurðin er allt um kring.

Í fjörunum í Tálknafirði er víðast hvar hvítur sandur sem hefur myndast við að skeljar brotna niður og safnast fyrir í fjöruborðinu. Það er ótrúlega gaman að leika sér í sandinum og byggja þar kastala eða stífla lækina og mörg börn hafa notið þess að leika sér í sandinum. Það má líka sitja í sandinum og njóta kyrrðarinnar og slík íhugun er ómetanleg. Flestir koma endurnærðir úr fjöruferðunum og með bros á vör þó yngri kynslóðirnar eigi það til að blotna aðeins í fæturna þegar sjórinn heillar aðeins of mikið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *