Áhöld og aðstaða

Ýmis áhöld þarf að nota við jurtalitunina til að vinda upp bandið og sjóða jurtirnar og lita úr þeim. Til að auðvelt sé að lita bandið er best að vinda það upp í hespur þar sem þá tekur bandið sem jafnastan lit. Til að vinda upp hespurnar er best að nota hesputré sem snúið er í ákveðið marga hringi eftir því sem þarf til að ná réttri þyngd á hespuna. Besti vinur jurtalitunarfólksins er rafknúið hesputré sem vindur upp þrjár hespur í einu en einnig má nota venjulegt hesputré sem er snúið með handafli. Það er þó fljótt að segja til sín í öxlum og því eru þessi rafknúnu dásamleg uppgötvun.

Við jurtalitun er mikilvægt að gæta þess að áhöld og pottar séu ekki notuð við matseld þar sem ýmis efni eru ekki æskileg að berist í matargerð. Það er því nauðsynlegt að koma sér upp áhöldum og ílátum sem eingöngu eru ætluð við jurtalitunina og gæta vel að geymslu þeirra til að ekki sé hætta á að þau séu óvart notuð við matseld.

Til að sjóða jurtir er best að nota stálpotta, nógu stóra til að taka það magn af bandi sem lita á í einu þar sem nánast ómögulegt er að fá nákvæmlega sama lit aftur í næstu litun. Síðan þarf sleifar til að hræra í pottinum, bala, skálar eða vaskaföt til að færa bandið upp úr pottinum og síðan þarf þurrkaðstöðu til að þurrka bandið eftir þvott eða litun.

Bandið þarf alltaf að þvo áður en það er litað til að tryggja að bandið taki jafnt við litnum en óhreinindi geta haft áhrif á hversu vel liturinn binst við bandið. Þegar búið er að lita bandið er líka nauðsynlegt að þvo bandið til að lausar litaagnir loði ekki við bandið þegar farið er að nota bandið.

Mikið er til af góðum bókum og heimasíðum þar sem leiðbeint er um jurtalitun auk þess sem haldin eru námskeið í jurtalitun hjá aðilum sem kunna til verka og geta miðlað af sinni reynslu og þekkingu.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *