Skilmálar

Upplýsingar

Vefverslunin Handverk frá Lilju er rekið af Gallery Lilja/Lilja Magnúsdóttir kt. 140860-3529 á vefsíðunni https://gallerylilja.is/ (Hér eftir verður talað um seljanda)

Með því að heimsækja síðuna og/eða versla af síðunni samþykkir kaupandi þessa skilmála.

Skilmálar

Öll ákvæði þessara skilmála ber að túlka í samræmi við íslensk lög um neytendakaup. Skilmálarnir gilda um viðskipti seljanda og kaupanda og réttindi og skyldur þeirra þar að lútandi.

Að öðru leyti gilda ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000, ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Í þessum skilmálum og öðru því sem viðkemur Handverk frá Lilju og Gallery Lilja er Lilja Magnúsdóttir ábyrgðaraðili.

Pantanir

Þegar kaupandi hefur staðfest pöntun á vefsvæðinu https://gallerylilja.is telst hún bindandi milli aðila. Seljandi sendir kaupanda pöntunarstaðfestingu í tölvupósti þegar pöntun hefur verið skráð að því gefnu að kaupandi hafi gefið upp rétt netfang.

Vara telst eign seljanda þar til kaupverð hefur verið greitt að fullu.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar svo fljótt sem hægt er eða innan 3-5 daga frá pöntun frá Gallery Lilja á næsta pósthús.

Sé vara ekki til á lager er haft samband við kaupanda og komist að samkomulagi um afhendingartíma eða vara endurgreidd ef þess er óskað. Seljandi áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, breyta verði eða vörutegundum án fyrirvara.

Kaupanda er ávallt tilkynnt um breytingar og boðið að breyta pöntun eða hætta við hana.

Engin ábyrgð er tekin á þeim tíma sem tekur Íslandspóst að koma sendingunni til skila frá því að hún er póstlögð. Um allar pantanir sem dreift er af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

Seljandi ber samkvæmt þessum skilmálum enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Gallery Lilja og þar til hún er afhent kaupanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingarkostnaður

Öll verð á vöru eru birt á heimasíðunni með fyrirvara um villur. Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði á vöru eða hætta við pöntun ef verð vöru hefur verið rangt skráð eða vörur ekki til.

Ávallt er haft samband við kaupanda ef slíkar villur koma í ljós. Gallery Lilja er smáframleiðandi sem vegna smæðar rekstursins er ekki með virðisaukaskyldan rekstur og því eru reikningar ekki gefnir út með virðisauka. Aukist velta rekstursins í það hámark sem sett er af skattayfirvöldum mun reksturinn færast yfir í virðisaukaskyldan rekstur og kaupendum tilkynnt það undir skilmálum.

Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram ef senda á vöruna í pósti. Allar vörur eru sendar með Íslandspósti. Valfrjálst er hvort pakkinn er sendur beint heim að dyrum, í póstbox eða á næsta pósthús. Sendingarkostnaður er samkvæmt verðskrá Íslandspósts hverju sinni.

Greiðslumáti

Hægt er að greiða með kortum, greiðslur með korti fara í gegnum örugga greiðslugátt á vefsíðunni í samstarfi við MyPos.com og á kortayfirlitinu mun standa Handverk.

Sendingargjald bætist við þegar við á, áður en kaup eru frágengin á síðunni. Vara er ekki afhent fyrr en greiðsla hefur borist seljanda. Vara er eign seljanda þar til greiðsla fyrir vöruna hefur borist.

Valmöguleikar á sendingum

Ísland

Allar vörur eru sendar með Íslandspósti. Valfrjálst er hvort pakkinn er sendur beint heim að dyrum, í póstbox eða á næsta pósthús. Sendingarkostnaður er samkvæmt verðskrá Íslandspósts hverju sinni. Gallery Lilja sendir ekki erlendis.

Pósthús

Sending fer á pósthúsið þitt og þú sækir hana þar

Heimsending

Sending fer beint heim að dyrum

Póstbox

Sending fer í póstbox

Að skila eða skipta vöru

Við kaup á vöru er veittur 14 daga skilaréttur frá móttöku vöru gegn því að framvísa sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu ástandi þegar henni er skilað. Við skil á vöru skal miða við upprunalegt verð hennar þegar varan var keypt.

Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru er varan endurgreidd til kaupanda. Ef farið er fram á endurgreiðslu þá er hún framkvæmd eftir að seljandi hefur tekið við vörunni. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Endursend vara er send á heimilisfang Gallery Lilja, Miðtúni 4, 460 Tálknafirði. 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er hún endursend til seljanda og viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Einnig er hægt að óska eftir endurgreiðslu. Að öðru leyti vísast til laga um neytendasamninga nr. 16/2016 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingarnar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Vestfjarða.

Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 01 mars 2023