Um jurtalitunina mína

Ég er fædd og uppalin í sveit þar sem foreldrar mínir voru sauðfjárbændur. Ull og jurtir voru því stór hluti af lífinu í sveitinni auk þess sem móðir mín var mikil áhugamanneskja um plöntur og að þekkja þær með nöfnum og notagildi þeirra sem krydd eða te eða til matar. Á næsta bæ bjó kona sem litaði ullarband með jurtum og óf úr bandinu og þó ég hefði ekki áhuga á jurtalitun á þeim tíma var þessi notkun jurta mér kunnug frá barnsaldri. 

Áhugi minn á jurtalitun og löngun til að læra hana kviknaði þegar ég var við nám í iðnhönnun í Iðnskóla Hafnarfjarðar á árunum 1994-1996 og þegar boðið var upp á námskeið hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands í jurtalitun ákvað ég að læra þetta fag. Næstu ár á eftir prófaði ég mig áfram með að lita með jurtum og hvernig best væri að ná árangri í jurtalituninni. Litaða bandið hefur verið notað til gjafa og úr því hefur verið prjónað ýmislegt. Ég tók mér síðan hlé á jurtalituninni í nokkur ár en löngunin blundaði alltaf með mér og 2015 tók ég fram pottana aftur og hélt af stað í þetta skemmtilega ferðalag.

Auk þess að prófa mig áfram með litunarjurtir las ég allt sem ég náði í um jurtalitun og smám saman lærðist hvað voru góð ráð og hvað var minna að marka. Besti skólinn var þó að prófa sig áfram, gera mistök og læra þannig smám saman af reynslu minni og annarra. Áhugamálið jurtalitun er margþætt og margt sem kemur þar við sögu. Það þarf að þekkja jurtirnar sem nota á, finna út hvar þær vaxa, tína þær og þurrka ef ekki er hægt að lita úr þeim ferskum og hvernig best er að geyma þær. Það þarf að koma sér upp aðstöðu til að vinda upp bandið, potta og ílát til að lita það og svo að þurrka það og ganga frá bandinu þannig að það geymdist sem best þar til stund gæfist til að prjóna úr því. 

Í þessum pistlum sem hér munu líta dagsins ljós langar mig að segja frá jurtalituninni, hvernig best er að nota jurtirnar og efnin til að fá fram fallega liti og annað sem kemur áhugasömum liturum að gagni við að feta þessa skemmtilegu slóð sem hefur fylgt mannkyninu frá örófi alda. Vonandi hafa einhverjir áhugasamir gaman af þessum pistlum og finna hér fróðleik til að halda áfram að prófa sig áfram við að galdra fram þessa dásamlegu liti sem náttúran geymir í jurtum sínum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *