Garnival í Hafnarfirði 1. mars

Eitt af því sem fylgir því að framleiða jurtalitað band er að reyna að koma því á framfæri sem víðast til að fá áhugasama kaupendur til að kaupa svo ég geti haldið áfram að lita.

Framundan er eitt slíkt tækifæri, garnhátíðin Garnival_yarnfestival sem haldin verður 1.mars í Haukahúsinu í Hafnarfirði. Þar stefni ég á að vera með jurtalitaða bandið og kynna það og vonandi selja eitthvað. Annars er mesta ánægjan fólgin í því að hitta allar þessar ótrúlega áhugasömu prjónakonur og spjalla við þær um band og prjónaskap.

Undanfarna daga og vikur er ég búin að vera að undirbúa þessa hátíð, lita og lita og svo þarf að þvo og vinda upp og merkja hespurnar svo allt sé nú í röð og reglu. Þó það sé mikil vinna er hún alveg óskaplega skemmtileg. Það er líka heilmikil heilun í að handfjatla svona fallega liti og vinna með þá. Það kvikna líka endalausar hugmyndir í allar áttir og hægara sagt en gert að hafa stjórn á þeim öllum því allar eru þær spennandi.

Það verða alla vega tíndar jurtir í sumar og settar í potta og hugsunin um sumar og sól og jurtir er gefandi í vetrarkuldanum þessa dagana.

Hlakka til að sjá ykkur sem allra flest á sunnudaginn kemur í Haukahúsinu í Hafnarfirði.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *