Eftir annasamt sumar er gaman að líta um öxl og gleðjast yfir öllum þessum frábæru viðtökum sem eg hef fengið með bandið mitt á hinum ýmsu mörkuðum. Garnival í Hafnarfirði í mars, Prjónagleðin á Blönduósi í júní, Markaðsdagar á Bolungarvík í júlí og svo allir markaðirnir hér á Tálknafirði og Patreksfirði.
Alls staðar hefur mér og bandinu mínu verið frábærlega vel tekið og mikið spurt og spjallað og verslað. Það er óskaplega gaman að finna allan þennan áhuga á jurtalitaða bandinu mínu og hvað hægt er að gera úr því.
Nú er farið að dimma á kvöldin og þá er alveg tilvalið að fara að vinda upp meira band til að geta byrjað að lita aftur í haust. Það er svo gaman að setja jurtir í pott og finna ilminn af sumrinu og njóta allra fallegu litanna sem verða til við litunina. Það er eins gott að eiga góðan lager fyrir vorið og næsta sumar því ég ætla að halda áfram að mæta á alla þessa skemmtilegu markaði sem haldnir eru víða um land.
Myndin sem fylgir er af básnum mínum á Tálknafjöri, bæjarhátíðinni okkar hér í Tálknafirði sem var haldin síðustu helgina í júlí í dásamlegu veðri og mikill fjöldi fólks sótti okkur heim.

