Jurtir til litunar

Jurtalitun hefur verið notuð til að bregða lit á umhverfi mannsins frá örófi alda og þekking hefur gengið milli kynslóða. Við landnám þurftu nýir íbúar landsins að læra á þær jurtir sem hér uxu en flestar þeirra þekktu þeir þó úr heimkynnum sínum og gátu nýtt sér þær á sama hátt.

Jurtir eru misgóðar til litunar, sumar gefa sterka og trausta liti sem endast í flíkum og verkum áratugum og jafnvel árhundruðum saman eins og má sjá í veggteppum í köstulum miðalda víða um Evrópu. Aðrar jurtir gefa litla sem enga liti eða þá að þeir endast ekki lengi við notkun og þvotta. Þekking litunarfólks byggist ekki hvað síst á þessari reynslu og því er mikilvægt að nota litunarjurtir sem vitað er að endast.

Þegar nýjar litunarjurtir eru prófaðar með tilliti til endingar litsins er bandið sem litað er oft vafið upp á spjald og haft út í glugga þar sem sól skín á prufuna í nokkrar vikur. Ef lítill munur verður á bandinu þar sem sólin skein á það er liturinn talinn traustur.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *