Það er ekki nóg að vera með góðar fyrirætlanir því stundum grípur lífið inn í og breytir þeim eða þá að tíminn hleypur frá manni án þess að rönd verði við reist. Það var það sem gerðist hjá mér síðastliðið sumar þegar ég var búin að koma heimasíðunni minni í loftið. Ég ætlaði að vera […]
Author Archives: Lilja Magnúsdóttir
Ýmis áhöld þarf að nota við jurtalitunina til að vinda upp bandið og sjóða jurtirnar og lita úr þeim. Til að auðvelt sé að lita bandið er best að vinda það upp í hespur þar sem þá tekur bandið sem jafnastan lit. Til að vinda upp hespurnar er best að nota hesputré sem snúið er […]
Í Tálknafirði er fallegt landslag hvert sem litið er og á hvaða árstíma sem er. Þegar fjöllin speglast í sléttum sjónum í logninu og sólin glampar á hvítan fjörusand þá er sama hvaða árstíð er, náttúrufegurðin er allt um kring. Í fjörunum í Tálknafirði er víðast hvar hvítur sandur sem hefur myndast við að skeljar […]
Jurtalitun hefur verið notuð til að bregða lit á umhverfi mannsins frá örófi alda og þekking hefur gengið milli kynslóða. Við landnám þurftu nýir íbúar landsins að læra á þær jurtir sem hér uxu en flestar þeirra þekktu þeir þó úr heimkynnum sínum og gátu nýtt sér þær á sama hátt. Jurtir eru misgóðar til […]
Ég er fædd og uppalin í sveit þar sem foreldrar mínir voru sauðfjárbændur. Ull og jurtir voru því stór hluti af lífinu í sveitinni auk þess sem móðir mín var mikil áhugamanneskja um plöntur og að þekkja þær með nöfnum og notagildi þeirra sem krydd eða te eða til matar. Á næsta bæ bjó kona […]
Ég er uppalin í sveit og í nánum tengslum við náttúruna og umhverfi mitt frá barnæsku. Æskuárin liðu við leik í náttúrunni og við vorum fljót að læra hvað var skemmtilegt og hvað gat haft hættu í för með sér. Um leið og getan leyfði tókum við systkinin þátt í sveitastörfunum og seinna var farið […]