Það er ekki nóg að vera með góðar fyrirætlanir því stundum grípur lífið inn í og breytir þeim eða þá að tíminn hleypur frá manni án þess að rönd verði við reist.
Það var það sem gerðist hjá mér síðastliðið sumar þegar ég var búin að koma heimasíðunni minni í loftið. Ég ætlaði að vera dugleg að nýta mér samfélagsmiðla til að koma jurtalitaða bandinu mínu á framfæri en alls konar verkefni komu upp og áður en ég vissi af voru komin jól og svo nýtt ár og engar færslur á síðunum mínum. Það er svo sem skýring á þessum önnum hjá mér því fyrir utan vinnu og aðra fasta liði seldi ég íbúðina mína og keypti nýja þannig að mikill tími hefur farið í að pakka niður, flytja, þrífa og taka upp úr kössum og koma mér fyrir í nýju íbúðinni minni. Þar fer vel um mig og nóg pláss er fyrir bandið mitt og jurtalitunina svo nú gefst vonandi tími til að njóta þess að setja jurtir í pott og búa til fleiri dásamlega liti.
Í sumar var ég nokkuð duglega að koma bandinu mínu á framfæri á mörkuðum, bæði hér fyrir vestan og norður í Fnjóskadal þar sem góð vinkona og systur hennar stóðu fyrir veglegu kaffihlaðborði og sumarmarkaði í lok júlí. Það var afskaplega gaman að hitta fullt af fólki og tala um bandið mitt og heyra álit fólks þess á öllum fallegu litunum sem íslenskar jurtir gefa af sér. Fyrir jólin voru líka haldnir markaðir hér fyrir vestan og nokkrar hespur rötuðu í jólapakkana frá ánægðum kaupendum og vonandi hafa þær glatt þá sem fengu litskrúðugar gjafir.
Hér á sunnanverðum Vestfjörðum hefur veturinn farið þokkalega mjúkum höndum um okkur íbúana þó snjórinn hafi mætt og dvelur hér hjá okkur þessa dagana. Vonandi verður hann ekki mikið á ferðinni og trufli þannig ferðalög og flutninga þar til hann kveður okkur þegar vorið fer að nálgast. Þegar kalt er úti er gullið tækifæri til að sinna áhugamálunum og ég hlakka til að stússa við bandið mitt og lita meira og vonandi get ég sýnt ykkur afraksturinn fyrr en varir.
Í vefversluninni hér á síðunni eru margir fallegir litir af bandi og ég vona að þið finnið sem mest við ykkar hæfi. Það er líka alveg sjálfsagt að hafa samband og spyrjast fyrir um fleiri liti ef þið finnið ekki rétta litinn í verkefnið ykkar í versluninni. Hlakka til að heyra frá ykkur og njótið allra fallegu litanna sem íslenskar jurtir geta gefið af sér.