Náttúran í kringum okkur

Ég er uppalin í sveit og í nánum tengslum við náttúruna og umhverfi mitt frá barnæsku. Æskuárin liðu við leik í náttúrunni og við vorum fljót að læra hvað var skemmtilegt og hvað gat haft hættu í för með sér. Um leið og getan leyfði tókum við systkinin þátt í sveitastörfunum og seinna var farið að vinna í frystihúsinu eins og svo margir aðrir. Það lærðist fljótt að taka mark á náttúrunni og veðrinu og læra að lifa með umhverfi okkar til að varast hættur en ekki síður til að njóta þeirra dásemda sem náttúran býður upp allt um kring. 

Ég hef alla tíð haft áhuga á náttúru, umhverfi og ræktun og einnig fólkinu og samfélaginu í kringum mig. Ég er svo heppin að hafa kynnst fjölda fólks um allt land með svipaðan áhuga og þó við séum ekki alltaf öll sammála viljum við náttúru og umhverfi okkar allt hið besta ásamt því að stuðla að öflugum samfélögum sem halda vel utan um íbúa sína.

Í þessum pistlum sem hér munu birtast langar mig að vekja máls á ýmsum þeim málum sem snúa að náttúru, umhverfi og samfélagi og hvernig þau mál snúa við mér og mínu umhverfi. Tilgangurinn er að vekja athygli á því sem þarf að ræða, hvetja til bættrar umgengni við umhverfi og náttúru og ræða saman um hvernig við getum búið að samfélögum okkar til að styrkja þau og bæta. Svo langar mig líka til að segja ykkur frá skóginum mínum og öðru skemmtilegu sem gerist hér í Tálknafirði og nágrenni og svo eru allar sögurnar frá liðnum tíma sem gaman er að segja frá.

Vona að þið hafið gagn og gaman af að fylgjast með þessum pistlum mínum í framtíðinni.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *