Persónuverndarstefna
Gallery Lilja leggur mikla áherslu á persónuvernd og sýnir fyllstu varúð við meðferð allra persónuupplýsinga. Öll meðferð persónuupplýsinga skal vera í samræmi við gildandi lög, reglur og grundvallarsjónarmið um persónuvernd. Stefna þessi tekur til þeirra persónuupplýsinga og vinnslu þeirra sem safnað er þegar verslað er við vefverslunina Gallery Lilja.
Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á persónuupplýsingum sem falla undir þessa stefnu og sem unnið er með í tengslum við verslun í þessari vefverslun. Til að unnt sé að afgreiða kaupendur í vefversluninni og veita þá þjónustu sem boðið er upp á er nauðsynlegt að vinna með margskonar persónuupplýsingar sem aflað er beint frá kaupanda en engra upplýsinga er aflað annars staðar frá.
Tengiliðaupplýsingar: Nafn, kennitala, heimilisfang og netfang eru upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að tryggja að þær vörur sem keyptar eru séu sendar á réttan stað og til rétts kaupanda ásamt því að hægt sé að eiga í samskiptum við kaupanda vegna mögulegra vöruskila eða annarra atriða sem snerta kaupin. Eingöngu nauðsynlegum upplýsingum vegna kaupanna er safnað og vinnslu þeirra haldið í algjöru lágmarki í samræmi við lög um neytendakaup, bókhald og annað sem söluaðilum er skylt að halda utan um.
Greiðsluupplýsingar: Greiðslukortanúmer eru aldrei vistuð heldur er kaupanda vísað á greiðslusíðu færsluhirðis þar sem kaupandi slær sjálfur inn greiðslukortanúmer og aðrar upplýsingar sem þarf til að ljúka greiðslu. Staðfesting berst síðan til seljanda um að greiðsla hafi átt sér stað og þær upplýsingar eru þannig grundvöllur fyrir afhendingu vörunnar auk þess sem salan er færð í bókhald.
Upplýsingar um vörukaup: Nauðsynlegt er að vinna með upplýsingar um vörur sem keyptar voru, upphæð og dagsetningu kaupa til að geta afgreitt rétta vöru og tryggja skilarétt viðskiptavina.
Auk þeirra persónuupplýsinga sem að ofan getur er unnið með ópersónugreinanlegar upplýsingar til að starfrækja vefverslunina svo sem tölfræðilegar upplýsingar um hvenær viðskiptavinir versla, hvaða vörur eru seldar og annað sem snýr að rekstri verslunarinnar. Engar slíkar upplýsingar er hægt að rekja til einstaka viðskiptavinar og einungis er um ópersónugreinanlegar upplýsingar um hópa viðskiptavina að ræða.
Engum persónugreinanlegum upplýsingum um viðskiptavini er undir neinum kringumstæðum deilt með þriðja aðila nema til að setja keyptar vörur í póst til kaupanda og þá er einungis um nafn og heimilisfang að ræða. Geymslutími þeirra persónuupplýsinga sem safnað er ræðst af þeim tilgangi sem þeirra er aflað og þeirri heimild sem vinnslan byggir á. Tengiliðaupplýsingar eru geymdar meðan kaupandi er skráður notandi vefverslunarinnar en kaupandi getur hvenær sem er afskráð sig og lokað aðgangi sínum.
Upplýsingar um vörukaup ásamt greiðslustaðfestingu eru geymd í þann tíma sem ákvæði í lögum um bókhald kveða á um eða minnst sjö ár.
Kaupandi hefur alltaf þann rétt að óska eftir aðgangi og afriti af persónuupplýsingum sínum hjá seljanda, láta leiðrétta þau eða eyða þeim ef hann óskar svo. Þessum réttindum er nánar lýst í lögum um persónuvernd nr. 90/2018.
Ábyrgðaraðili vinnslu þessara persónuupplýsinga er Gallery Lilja/Lilja Magnúsdóttir, kt. 140860-3529 til heimilis að Miðtúni 4, 460 Tálknafirði og erindi sem tengjast því er hægt að senda á netfangið info@gallerylilja.is Rísi ágreiningur í tengslum við meðferð persónuupplýsinga vegna vefverslunar Gallery Lilja skal reka það mál fyrir Héraðsdómi Vestfjarða.
Útgefið í apríl 2023.
Vafrakökustefna
Vafrakökur (ie. Cookies) innihalda allskyns upplýsingar sem vefurinn þarf til að viðhalda réttri virkni. Notkun þeirra er nauðsynleg til að veita notendum síðunnar betri upplifun og til að mæla heimsóknir á vefinn. Með því að samþykkja notkun á vafrakökum þá sérðu til þess að þú fáir bestu mögulega upplifun á vefnum sem völ er á. Vafrakökur hafa ólíkan gildistíma, ákveðnar vafrakökur virka eingöngu meðan vafri er opinn og er eytt þegar vafranum er lokað (e. session cookies) á meðan aðrar vafrakökur hafa lengri gildistíma. Hægt er að stilla og takmarka notkun á vafrakökum en mismunandi er eftir vöfrum hvernig það er gert. Öryggi er mjög mikilvægt og því notast þessi vefur við SSL dulkóðun og öruggari HTTPS staðalinn. Engar tilraunir eru gerðar til að tengja heimsókn við persónugreinanlegar upplýsingar.