Seljandinn Gallery Lilja
Ég heiti Lilja Magnúsdóttir og bý á Tálknafirði þar sem ég framleiði handverkið mitt eftir því sem tími gefst til. Markmið mitt er að veita viðskiptavinum mínum úrvals vörur á sanngjörnu verði. Á þessari síðu er selt jurtalitað einband auk annars handverks undir vörumerkinu Handverk frá Lilju. Einbandið er litað úr jurtum sem vaxa í Tálknafirði auk þess sem notaðar eru erlendar litunartegundir til að fá rauða og bláa liti sem fást ekki úr íslenskum jurtum. Jurtalitun er talin hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og þekkingin hefur varðveist milli kynslóða allan þennan tíma. Ég lærði jurtalitun á námskeiði hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands 1995 og hef lítillega fengist við jurtalitun í gegnum tíðina ásamt alls konar handverki. Það er núna síðustu árin sem ég hef aukið framleiðsluna og þróað vörurnar mínar og býð þær nú til sölu á þessari vefsíðu. Ásamt sölu á jurtalitaða bandinu mínu og öðru handverki stefni ég að því að vera með fræðslu um jurtir og jurtalitun ásamt umfjöllun um umhverfi mitt og það sem skiptir máli varðandi að ganga vel um náttúruna og lifa í sátt við hana. Það er von mín að þið sem heimsækið þessa síðu hafið gagn og gaman af og njótið sem best þess sem hér er boðið upp á.
Gallery Lilja upplýsingar
Ábendingar um jurtalitað band
Gallery Lilja gerir sitt besta til að litir á jurtalituðu bandi séu sýndir sem réttastir í vefversluninni en þar sem skjáir eru mismunandi er ekki hægt að ábyrgjast að skjárinn þinn sýni réttan lit á bandinu. Einnig er ekki alltaf hægt að ábyrgjast að öll hespan sé jafnt lituð þar sem alltaf er möguleiki að litir dreifist misjafnt um hespuna við litunina í pottinum en við það gæti myndast litamynstur í bandinu. Misjafn litur á hespu er ekki talinn galli og fæst því hespan ekki endurgreidd á þeirri forsendu en að sjálfsögðu er hægt að skila allri vöru sem kaupandi er ekki ánægður með. Allar hespur úr sömu litun eru merktar með sama lotunúmeri en ekki er hægt að fá nákvæmlega sama litinn aftur í annarri litun. Jurtalitað band hjá Gallery Lilja er ekki litað í miklu magni í sama litanúmeri og því getur verið takmarkað framboð af hverju litanúmeri.
Um notkun vefsins
Þessi vefur er í eigu Gallery Lilja og með því að heimsækja þessa síðu og/eða kaupa eitthvað af vörum á síðunni hefur þú sjálfkrafa samþykkt þá skilmála sem kunna að vera tengdir við síðuna. Þessir skilmálar eiga við um alla notendur síðunnar. Þér er velkomið að vafra um, kaupa vörur, lesa efni og skoða myndir og almennt nota vefinn þannig og það efni sem hann býður upp á. Þú mátt ekki nota neitt af þeim texta, myndum og vörum sem eru á vefnum með ólöglegum eða ósamþykktum hætti og allt efni á þessum vef er höfundarvarið. Ef vitnað er til texta, mynda eða annars efnis á þessum vef ber að fá leyfi hjá Gallery Lilja og geta höfundar og hvar efnið er fengið. Það er ekki leyfilegt að dreifa á þessum vef eða smita netföng eða vefföng sem tengjast þessum vef á neinn hátt með vírusum eða öðru sem telst vera eyðileggjandi fyrir vefi eða netnotkun.